Sveitasælan 10.-14. júní (eh)

18.000 kr.

Tímasetning
13:00-16:00

Við í Húsdýragarðinum á Hraðastöðum bjóðum krökkum að koma á námskeið hjá okkur og fá að upplifa lífið í sveitinni. Námskeiðin eru í viku í senn frá mánudegi til föstudags.

Aldurstakmark 6+

Verð á námskeiðið er 18.000 kr.  fyrir vikuna (4 dagar) og er boðin upp á 5% systkyna afslátt.
Staðfestingagjald er 6.000 kr. sem ekki endurgreiðist ef afbókað er á námskeiðið.

Okkar markmið með námskeiðinu er að krakkarnir skemmti sér vel, læri að umgangast dýr og njóti þess að vera í sveitinni.

Það sem verður m.a. gert á námskeiðunum:

  • Krökkunum verður kennt að umgangast dýrin og fóðra þau.
  • Kemba og flétta hestana.
  • Þeir sem vilja fá að fara á hestbak.
  • Farið verður í leiki.
  • Krakkarnir eru hvattir til þess að klæða sig eftir veðri þar sem námskeiðið fer mest megnis fram utandyra, við bjóðum ekki upp á mat svo það þarf að taka með sér nesti.

Öll skráning fer fram hér í gegnum heimasíðu okkar.

Ef koma upp einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu á hradastadir@gmail.com eða í síma 776 7087 (Linda) / 770 2361 (Nina)

Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!

Það eru ennþá laus pláss á þetta námskeið.

    • per barn
Vörunr. 0102 Vöruflokkur: