Sveitasælan 2023

Við í Húsdýragarðinum á Hraðastöðum bjóðum krökkum að koma á námskeið hjá okkur og fá að upplifa lífið í sveitinni. Námskeiðin eru í viku í senn frá mánudegi til föstudags.
Aldurstakmark 6+
Verð á námskeiðið er 18.000 kr. fyrir vikuna (14.400 kr. fyrir 4 daga) og er boðin upp á 5% systkyna afsláttur.
Námskeiðin hefjast þann 12. júní og standa til 18. ágúst.

Okkar markmið með námskeiðinu er að krakkarnir skemmti sér vel, læri að umgangast dýr og njóti þess að vera í sveitinni.

Það sem verður m.a. gert á námskeiðunum:

  • Krökkunum verður kennt að umgangast dýrin og fóðra þau
  • Kemba og flétta hestana
  • Þeir sem vilja fá að fara á hestbak
  • Farið verður í leiki

Krakkarnir eru hvattir til þess að klæða sig eftir veðri þar sem námskeiðið fer mest megnis fram utandyra, við bjóðum ekki upp á mat svo það þarf að taka með sér nesti.

Skráning fer fram með nýju móti þetta árið og verður öll skráning í gegnum heimasíðu okkar.

Ef koma upp einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu á hradastadir@gmail.com eða í síma 776 7087 (Linda) / 770 2361 (Nina)

Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!

Námskeið í boði

Júní – fyrir hádegi (09:00-12:00)
Júní – eftir hádegi (13:00-16:00)
Júlí – fyrir hádegi (09:00-12:00)
Ágúst – fyrir hádegi (09:00-12:00)